5.12.2015 | 13:55
Opið bréf til
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu.
Hverfisgötu 115
Reykjavík
Opið bréf til Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu.
Með vísan til auðvirðulegrar afgreiðslu yðar á framlögðum kærum undirritaðs, á hendur dómurum, með því að hunsa rannsókn lögreglu á málunum eins og gert er ráð fyrir í lögum.
Ef lögreglustjórinn er ekki betur lesinn í ástæðu þess að umrætt embætti var sett á stofn þá er rétt að fræða hann/hana um tilurð embættisins.
Sæmilega gáfaðir karlmenn höfðu komist að þeirri niðurstöðu að óásættanlegt væri að refsingar fyrir brot á samskiptareglum manna í milli væri mismunandi eftir því hver framkvæmdi refsingu fyrir verknað þann er deilt var um. Refsingar fóru fram eftir geðþóttaákvörðunum þess eða þeirra sem töldu sér misboðið.
Með tilkomu laga um samskipti á milli þegnanna var einnig ákveðið að allir þegnar samfélagsins væru jafnir fyrir lögunum óháð kyni, trú eða efnahag. Gilti það jafnt um æðstu stjórnendur ríkisins og öreiganna og alla þar á milli.
Það eru einnig ákvæði í lögum um það að þegnarnir skuli beina kærum, um brot á lögum á rétti kæranda, til lögreglu sem ætti að annast rannsókn á meintu lögbroti.
Það finnst hvergi í lögum að lögreglustjóri eða aðrir stjórnendur rannsókna á lögbrotum hafi rétt til að mismuna þegnunum hvað varðar rannsóknir á kærum.
Að gefinni ástæðu af hálfu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu að neita rannsókn á framlögðum kærum á hendur dómurum fyrir gróf brot á lögum, um meðferð mála fyrir dómi, er tilefni til að ætla að lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hafi með athæfi sínu gróflega brotið á rétti undirritaðs hvað varðar jafnrétti fyrir lögunum. Hvort ástæða synjunar lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu um rannsókn umræddra kærumála séu fyrirskipanir frá æðra stjórnvaldi, mútugreiðslur eða einhver annarleg sjónarmið verður lögreglustjórinn að eiga við sjálfan sig. Eftir sem áður er um gróft lögbrot að ræða og tilraun til að hindra framgang réttvísinnar.
Í ljósi þess sem hér er ritað er lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu krafinn um svör við eftirfarandi spurningum.
1. Eru framlagðar kærur ólöglega fram settar? Lögregluskýrslur nr. 007-215-023922. 007-215-023957. 007-215-023963. 007-215-023973007-215-023982. frá byrjun apríl 2015
2. Hvaða hindranir eru í vegi þess að málin séu rannsökuð?
3. Hver er ástæðan fyrir því að lögregluskýrslur voru ekki teknar fyrr en eftir sex ára baráttu við fjandsamlegt embætti lögreglustjóra?
4. Fékk embætti lögreglustjórans fyrirmæli frá æðra embætti stjórnsýslunnar um að hindra það að rannsókn á umræddum kærum færi fram?
5. Var um mútugreiðslur að ræða til að koma í veg fyrir rannsóknina?
6. Eru þeir sem ákærðir hafa verið æðri en aðrir þegnar landsins þegar kemur að rannsókn á lögbroti og þar af leiðandi sé hylmt yfir þau lögbrot sem ákærur snúast um?
7. Eru allir þegnar landsins jafnir fyrir lögum þegar kemur að refsiverðu athæfi (broti á gildandi lögum) eða hafa sumir forréttindi?
8. Eru fram lögð sönnunargögn sem lögð hafa verið með umræddum kærum óhrekjanleg og þess vegna megi ekki opna möguleika á því að almenningur fái upplýsingar um lögbrot æðri stjórnenda landsins?
9. Hefðu umræddar ákærur á hendur dómurum verið rannsakaðar ef framlögð sönnunargögn hefðu verið hrekjanleg (ósönn kærur ekki á rökum reistar)?
10. Er það svo að lögreglustjórinn hefur ekki þorað að stefna undirrituðum af ótta við að þá yrði uppvíst um lögbrot þeirra sem eru í æðri stöðum þjóðfélagsins?
11. Hverjir eru það sem hafa fyrirskipað lögreglustjóranum að hindra rannsókn á framkomnum ákærum á hendur æðri stjórnendum landsins?
12. Er það eitt af verkum lögreglustjórans að hindra framgang réttvísinnar þegar æðri embættismenn ríkisins eru ákærðir?
13. Hvaða ákæra af þeim sex sem eru komnar í skýrslubanka lögreglunnar er ekki studd óhrekjandi rökum (sönnunargögnum) um lögbrot ákærðra?
14. Ef lögreglustjóraembættið, Ríkissaksóknari og Innanríkisráðuneytið (sem framkvæmdavald) ekki sinna skyldum sínum varðandi jafnrétti allra þegna landsins gagnvart lögum --- Hverjir hafa þá aga og refsivaldið aðrir en þeir sem lög eru brotin á?
15. Hverjir eiga að rannsaka ákærur um lögbrot ef lögreglan er vanhæf til þess vegna lögbrots eins af æðstu mönnum lögreglunnar? (Skrifleg viðurkenning frá lögreglunni um vanhæfi til rannsóknar máls)?
16. Fást framlagðar kærur rannsakaðar eftir aflífun á einu meindýri?
17. Lögreglustjórinn er hér með spurður að því hvort nauðsyn sé til að grípa til aðferða Sturlungaaldar vígaferla (aflífa meindýr) til þess að hann/hún fari að lögum varðandi rannsókn á framlögðum ákærum?
18. Vill lögreglustjórinn hafa tillögurétt um það hvernig aflífun meindýrs fer fram?
19. Hvert eiga þegnar þessa þjóðfélags, Íslands, að snúa sér með kærur vegna lögbrota æðstu stjórnenda landsins þegar lögreglan og Ríkissaksóknari hunsa að framkvæma rannsókn vegna geðþóttaákvarðana ef ekki annarra annarlegra þátta?
Lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu er velkomið að senda þjóna sína í heimsókn til undirritaðs í annað sinn vegna greinaskrifa. Næst fá þeir kaffi og með því. Æskilegt er að fá vitneskju um það hvað margir verða sendir svo að hægt sé að leggja á borð fyrir þá.
Ef ég verð knúinn til aðgerða, svo sem aflífunar meindýrs, vegna hyskni ráðamanna (stjórnenda) lögreglunnar mun ég eftir að hafa vegið meindýr mæta á næstu lögreglustöð og lýsa yfir að ég hafi vegið meindýr að hætti forvera okkar. Krafist er svara við erindi þessu ekki seinna en 26. október 2015.
Reykjavík 14. október 2015
Kristján S. Guðmundsson
Árskógum 6 12 2
109 Reykjavík.
SENT 2015-10-14----
Með birtingu þessa erindis opinberlega er ítrekuð krafa um að af hálfu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu sé farið að lögum og fyrirspurn sé svarað ella segi lögreglustjórinn af sér embætti ef um mútugreiðslur er að ræða til að hindra framgang réttvísinnar.
Reykjavík 5. desember 2015.
Kristján S. Guðmundsson
Árskógum 6 12 2
109 Reykjavík.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.