11.5.2016 | 10:02
Forseti Íslendinga eða sæti hjá ESB.
Í forsetakosningum í júní 2016 verður tekist á um hvort Íslandi verði þröngvað inn í ESB-samstarfið eða ekki.
Broskarlinn sem er í framboði hefur lýst því yfir að hann styðji inngöngu Íslands í Evrópusambandið.
Ekki er það uppörvandi að eiga von á því að forseti þjóðarinnar vilji að Íslendingar afsali sér sjálfstæði sínu og endurtaki atburðinn frá árinu 1262.
Samkvæmt heimatilbúinni skoðanakönnun fréttamanna sem notuð er í áróðursskyni til styrktar broskarlinum nýtur hann umtalsverðs fylgis þeirra 700-800 Íslendinga sem spurðir voru.
Þetta eru Íslendingar sem eru þekktir fyrir að vera sammála skoðunum fréttamanna á ýmsum þjóðmálum og þar á meðal inngöngu í ESB og afsal Íslendinga á sjálfstæði sínu.
Ekki er ljóst hvort Íslendingar geri sér ljóst hver hættan sé ef Evrópu-sinni (broskarlinn) verður húsbóndi á Bessatöðum. Þar með yrði enginn baráttumaður gegn mesta böli er vofir yfir hinni íslensku þjóð með inngöngu í hið svokallaða Evrópusamband.
Það hefur verið viðurkennt að mesta böl sem leitt hefur verið yfir Íslendinga frá því landið fékk sjálfstæði, eftir áratuga baráttu, er aðild að hinu svokallaða Schengen samstarfi sem hefur orðið Íslendingum til meira tjóns en menn almennt gera sér grein fyrir.
Ef broskarlinn nær kosningu sem húsbóndi á Bessastöðum verður vinstri vitleysa Samfylkingarinnar um inngöngu í Efnahagsbandalagið ekki stöðvuð á sama hátt og landráðasamningur sem hlaut nafnið ICESAFE-samningur Samfylkingar og Vinstri grænna.
Það eru of fáir Íslendingar sem gera sér grein fyrir hvaða þræla-klafa þessar tvær fylkingar Samfylkingin og Vinstri grænir voru búnir að samþykkja að leggja á Íslendinga með samþykkt á ICESAFE-samningnum. Ef ekki hefði komið til sjálfstæður húsbóndi á Bessastöðum sem þorði að veita þjóðinni úrslita orðið varðandi þennan þræla klafa þessara tveggja flokka á Alþingi Íslendinga þá værum við í mjög erfiðum málum sem líkja má við versta tímabil Íslandssögunnar undir erlendri stjórn, þegar Íslendingar sultu heilu hungri og þurftu að éta maðkað mjöl.
Er dregið í efa að broskarlinn (G.Th.J.) hafi kjark eða pólitískt þor til að veita þjóðinni síðasta orðið í mikilvægum málum sem mislukkaðir alþingismenn hafa samþykkt. Sem dæmi um kjarkleysi húsbónda á Bessastöðum er að þjóðin fékk ekki tækifæri til að tjá sig um hið fyrirhugaða böl sem SCHENGEN-samstarfið hefur leitt yfir þjóðina.
Með áframhaldandi valdagræðgi þingmanna á Alþingi Íslendinga er þörf á að sá er þjónar á Bessastöðum hafi skilning, hugreki og pólitískt þor til að láta meirihluta þjóðarinnar eiga síðasta orðið þegar kemur að því að innleiða eigi þrælaklafa á þegna landsins eins og SCHENGEN-samstarfið er og aðild að Efnahagsbandalaginu verður fyrir þjóðina.
Reykjavík 11. maí 2016
Kristján S. Guðmundsson
fv. skipstjóri
Athugasemdir
Góð og þörf grein. Þessi hætta mun lyggja fyrir ef broskallin kemmst til valda. RÚV er umboðsmaður hans.
Valdimar Samúelsson, 11.5.2016 kl. 11:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.