Sögufölsun eigenda Eimskipafélags Íslands hf.

Er það undarlegt hvað núverandi eigendur Eimskipafélags Íslands leggja á sig við sögufölsun um aldur félagsins sem stofnað var 2009. Kennitala fyrirtækisins er 690409-0460. Eins og kennitalan ber með sér var fyrirtækið stofnað 2009 og er því ekki 110 ára heldur 15 ára

Núverandi fyrirtæki sem ber nafnið Eimskipafélag Íslands hf. er ekkert skylt H.F. Eimskipafélagi Íslands sem stofnað var 17. janúar1914. Til staðfestingar á þessari fullyrðingu getur hver sem er sem hefur áhuga á fengið uppgefna kennitölu hins nýja fyrirtækis.

Hver tilgangur eigenda fyrirtækisins er við að reyna að halda fram þeirri sögufölsun að um sé að ræða sama fyrirtækið er óskiljanlegt,

Óskabarn þjóðarinnar H.F. Eimskipafélag Íslands var lagt niður í skrípaleik eigenda þess á árunum 2003 og 2004 og reksturinn lagður undir flugfélag.

Má búast við framhaldi tilrauna af hálfu eigenda fyrirtækisins á sögufölsun á aldri hins nýja fyrirtækis

Reykjavík 18. janúar 2024

Kristján S. Guðmundsson

Fv. skipstjór


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband